26 febrúar 2007

Frumsýning að baki

Þá er frumsýning að baki og hægt að fara taka lífinu með aðeins meiri ró. Frumsýningin á leikritinu Batnandi maður sl. laugardagskvöld gekk mjög vel. Það hefur varla verið hægt að hugsa um neitt annað sl. tvo mánuði. Nú þarf maður að fara að setja fljótlega í annan gír og fara að huga að því sem hefur verið trassað á meðan.
Hvet alla til að sjá sýninguna en næsta sýning verður laugardaginn 3. mars kl. 20:30

23 febrúar 2007

Generalprufa

Jæja, þá er komið að því - Generalprufa í kvöld nú er bara að krossleggja fingur og vona það besta. Greini kannski frá því í kvöld hvernig gekk.

12 febrúar 2007

Lokaspretturinn

Jæja, þá er lokaspretturinn í æfingum á Batnandi maður að hefjast og nú er aðeins tæpur hálfur mánuður í frumsýningu. Ég verð sem sagt ekki viðræðuhæfur næsta hálfa mánuðinn eða svo. Annars er allt gott að frétta héðan frá okkur.