25 september 2007

Grasekkilsstand

Það verður að segjast eins og er að ég hef verið óttalega latur við að blogga nokkurn skapaðan hlut uppá síðkastið. Tilgangurinn með þessari síðu var að segja fréttir af mér og mínum og þegar lítið nýtt er að frétta er lítið bloggað. Þetta gefur náttúrulega augaleið. Ég hef verið grasekkill síðan 13. þessa mánaðar en Sigga er á Heilsuhæli NLFÍ nei það heitir víst Heilsustofnun nú til dags. Þær mægðurnar munu dvelja í Hveragerði í mánuð.
Túrinn okkar til Dannenberg á dögunum gekk vel og verður ferðasagan birt seinna ég hef bara haft nóg annað að gera en að taka hana saman. Reyndar bauð ég ferðafélögunum heim núna á dögunum og vorum við búinn að safna saman myndum á einn DVD disk sem ég sýndi við það tækifæri.
Framundan er 15 ára afmæli Halaleikhópsins og mun það verða heljarveisla, en ég hef ákveðið að taka ekki þátt í starfi leikhópsins í vetur sökum annara starfa, sem ég hef tekið að mér.
Ekki ætla ég að lofa neinu um það hvort bloggum fari að fjölga það ræðst einfaldlega af því hvort eitthvað verði að frétta af mér og mínum.