20 júlí 2007

Bara að drepa tímann


Hvað gerir maður þegar ekkert er annað að gera en að bíða eftir að ákveðið verk fari í gang. Jú maður stelst til að blogga. Bara svona til að drepa tímann.
Það er svosem ekkert merkilegt að frétta, það fer að styttast í fríið. Ætla bara að vona að það fari að stytta upp á væntanlegum áfangastað. Meðan sólin hefur leikið við okkur þá hefur rignt full mikið á meginlandi Evrópu.
Ætti maður að nenna að skella sér uppí Krika á eftir? Það er orðið nokkuð síðan ég hef kíkt þangað en ég má eiginlega til því hún Stína útbýr ábyggilega "Akureyring" handa mér ef ég kem.
Læt hérna fylgja með eina mynd svona til tilbreytingar en hún var tekin á smá túr um Mosó um síðustu helgi sem við félagarnir skuppum í.